Kvótakerfið er hvorki upphaf né endir á erfiðleikum landsbyggðarinnar

�?�?g þreytist aldrei á að brýna fyrir þeim sem hæst tala um gagngerar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og tilflutning aflaheimilda að hafa það hugfast að hér í Eyjum er kvótastaða sterk en samt hefur byggðin átt verulega undir högg að sækja. Kvótakerfið svokallaða er sannarlega ekki fullkomið þótt vissulega hafi það verið bætt.

Mín skoðun er sú að eðlilegt og sjálfsagt sé að það sé í stöðugri endurskoðun bæði hvað varðar hagstjórnarhluta þess sem og verndun fiskistofnanna. �?að skiptir hins vegar miklu að fólk átti sig á að kvótakerfið er hvorki upphaf né endir á erfiðleikum landsbyggðarinnar. Ráðandi aðilar verða að vinna sína heimavinnu og horfast í augu við eigið aðgerðaleysi í ýmsum málum en fela sig ekki á bak við umræðu um fiskveiðistjórnunarkerfið. �?essir aðilar verða að skoða málið í heild sinni og gera okkur íbúum meðfram strandlengjunni kleift að aðlagast breyttum tíðaranda og er mér þá efst í huga uppbygging samgangna, menntunar og opinberrar þjónustu.�?

Morgunblaðið greindi frá.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.