Landeyjahöfn: Dýpið mælt í dag
sandd_DSC_1976
Álfsnes við dýpkun á milli garða í Landeyjahöfn. Eyjar.net/ÓPF

Dýpkun í Landeyjahöfn hefur gengið ágætlega frá því um helgina, en dýpkun er enn háð flóðum. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Dýpkun hefur gengið ágætlega síðan á laugardaginn, en áfram er einungis hægt að dýpka á flóðinu,“ segir Pétur. Horfur næstu daga eru þó taldar góðar. „Ölduspá er mjög góð næstu daga,“ segir hann.

Áætlað er að taka nýjar dýptarmælingar síðar í dag sem munu varpa skýrara ljósi á stöðuna í hafnarmynninu. „Dýpið verður mælt síðdegis í dag og þá fæst betri mynd af stöðunni,“ segir Pétur í svari til Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.