Landeyjahöfn síðdegis - Þorlákshöfn á morgun
Herjólfsferð
Herjólfur á leið til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 (áður 17:00) og kl 18:00 (áður 19:30). Brottför frá Landeyjahöfn kl. 17:00 (áður 18:15) og kl 20:45

Aðrar ferðir hafa verið felldar niður þ.e. kl. 22:00/23:15. Ef gera þarf breytingu á áætlun, þá gefum við frá okkur tilkynningu um leið og það liggur fyrir, segir í tilkynningu frá skipafélaginu.

Fimmtudagur 12.desember 2024

Þá segir að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar á morgun, fimmtudag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 (áður 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45 (áður 20:45). Aðrar ferðir falla niður.

Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.  Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.  Strætó fer frá Mjódd kl. 09:00.

Hvað varðar siglingar fyrir föstudag verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 á föstudagsmorgun.

Nýjustu fréttir

Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.