Á morgun miðvikudag, leikur A-landslið karla gegn því færeyska á Laugardalsvellinum. Af því tilefni var Lars Lagerbäck, landsliðaþjálfari á beinni línu á DV.is. Þar sem Lagerbäck talar ekki íslensku, var Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari honum til aðstoðar við að þýða svörin. Lagerbäck var spurður að því hvaða lið væri best í íslensku deildinni. Landsliðsþjálfarinn sagði að ÍBV væri sterkasta liðið „…því Heimir situr við hliðina á mér.“