Dagskrá 6.-8. janúar 2023
Föstudagur 6. janúar
19:00 Hin eina sanna Þrettándagleði ÍBV. Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.
22:00 Háaloftið Einar Ágúst – Húsið opnar kl 22:00 – frítt inn.
Laugardagur 7. janúar
11:00-16:00 Einarsstofa
Kynjaverur úr ljósmynda- og listasafni Vestmannaeyja í Einarsstofu.
11:00-14:00 Bókasafnið
Ratleikur á Bókasafninu.
12:00-15:00 Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Tröllagleði. Fjölskyldan getur komið saman og leikið sér í íþróttasölum undir stjórn handknattleiksdeildar ÍBV.
12:00-13:00 Sagnheimar
Saga og súpa – Kjartan Másson, í samstarfi við Sævar Sævarsson útgefanda, kynnir bók sína „Engin helvítis ævisaga“ og les valda kafla.
13:00-16:00 Sagnheimar
Lokadagur leikfangasýningar.
12:00-16:00 Langur laugardagur í verslunum.
Sunnudagur 8. janúar
13:00 Helgistund í Stafkirkjunni. Sr. Guðmundur Örn Jónsson fer með hugvekju.
14:00-15:30 Höllin. Diskógrímuball Eyverja, Höllinni. Jólasveinninn mætir. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá nammipoka frá jólasveininum.
Hefðbundinn opnunartími á söfnum bæjarins.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.