Lífshlaupinu ýtt úr vör
6. febrúar, 2025
Lifshlaup 2025 Copy (1)
Guðrún Día Hjaltested starfsmannasjúkraþjálfari Landspítalans, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala, Eygló Fanndal Sturludóttir afreksíþróttakona og Guðrún Aspelund settur landlæknir. Mynd/Stjórnarráðið

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fluttu ávarp við setningu Lífshlaupsins í Barnaspítala Hringsins í gær. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem ætlað er að stuðla að aukinni daglegri hreyfingu, þátttakendum til heilsubótar.

Auk ráðherra tóku Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Guðrún Aspelund settur landlæknir og Eygló Fanndal Sturludóttir, afreksíþróttakona í lyftingum og læknanemi til orða. Þá kynnti Guðrún Día Hjaltested starfsmannasjúkraþjálfari heilsueflandi efni heilsuteymis LSH.

„Ég hvet fólk á öllum aldri til að taka þátt í Lífshlaupinu af lífi og sál samkvæmt getu. Fyrir þá sem lítið hreyfa sig getur Lífshlaupið verið hvatningin sem þarf til að taka upp breyttan lífsstíl og gera reglubundna hreyfingu að daglegri venju. Heilsufarslegur ávinningur er ótvíræður, jafnt fyrir líkamlega og andlega heilsu,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþróttahreyfingarinnar, fer nú fram í 18 skiptið. Frá upphafi hefur þátttaka almennings í gegnum sína vinnustaði og skóla verið framúrskarandi. Í mínum huga þýðir það að vitund og vitneskja almennings á gildi hreyfingar og líkamsræktar er svo sannarlega til staðar,“ segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, ráðherra íþróttamála. „Þrátt fyrir það fjölgar lífsstílstengdum vandamálum og sjúkdómum og þarf sífellt að viðhalda og efla fræðslu um íþróttir og heilsueflingu.“

Í ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum 150 mínútur á viku. Í Lífshlaupinu þarf að skrá 30 mínútur á dag í keppni vinnustaða og hreystihópa 67+ til að dagurinn telji. Lífshlaupið höfðar til allra aldurshópa og nær til frítíma, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.

Lífshlaupið skiptist í fjórar keppnir::

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri frá 5.-18. febrúar
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri frá 5.-18. febrúar
  • Vinnustaðakeppni frá 5.-25. febrúar
  • Hreystihópar 67+ frá 5.-25. febrúar

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega, segir í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 2tbl 2025
2. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst