Loðnumæling leiðir til veiðiráðgjafar upp á 21.800 tonn

Niðurstöður loðnumælinga dagana 6. – 11. desember 2020 liggja nú fyrir. Mælingarnar voru gerðar á uppsjávarveiðiskipunum Kap VE, Jónu Eðvaldsdóttur SF, Ásgrími Halldórssyni SF og grænlenska skipinu Iivid.

Mælingarnar fóru fram við ágætis skilyrði en hafís í Grænlandssundi takmarkaði yfirferð norðvestan við land. Vestan til var aðallega ungloðnu að sjá en á austari hluta yfirferðasvæðisins var nær eingöngu fullorðin loðna (mynd). Stærð hrygningarstofnsins mældist 487,4 þúsund tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns. Samkvæmt því leiðir þessi mæling til veiðiráðgjafar upp á 21 800 tonn veturinn 2020/21 og kemur í stað fyrri ráðgjafar frá því í október um engan afla.

Ráðgjöf um loðnu 16. desember 2020.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.