Ákvörðun Sjálfstæðisflokksins um að gera Írisi Róbertsdóttur að bæjarstjóraefni hefur vakið talsverð viðbrögð innan flokksins.
Í því samhengi fengu Eyjafréttir ábendingu um að Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafi sést á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum.
Við eftirgrennslan staðfesti Margrét að hún hygðist ekki styðja framboð Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum.
„Ég er sjálfstæðiskona og styð stefnu Sjálfstæðisflokksins en framboð Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum styð ég ekki í þessum kosningum og hef upplýst helstu trúnaðarmenn og forystu flokksins á landsvísu um það.
Ég á góða vini í Miðflokknum í Vestmannaeyjum. Jón Þór, Jóhann Ingi, Linda, Sæunn og Þura eru vinir mínir og hinir á framboðslistanum eru ágætis kunningjar mínir. Ég þekki þeirra áherslur og þær falla mér vel í geð. Ég veit líka að innan framboðsins er rík virðing borin fyrir samstarfsfólki og áhersla lögð á samstöðu framboðsins. Það skiptir mig líka máli.
Fyrir mér var málið einfaldlega þannig snúið að þessir vinir mínir báðu mig um aðstoð og þegar vinir biðja um aðstoð þá hlustar maður. Á þeim forsendum hef ég ætíð komið fram í stjórnmálum og öðru og hef ekki áhuga á að breyta því. Ég treysti þessu fólki til góðra verka og mun reyna að aðstoða þau í kosningabaráttunni. Ég tek þetta verkefni með vinum mínum og hvað verður í framtíðinni verður svo bara að koma í ljós,” segir Margrét Rós.
Eyjafréttir höfðu einnig samband við Jón Þór Guðjónsson, oddvita Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Jón Þór sagðist himinlifandi með að Margrét hafi verið tilbúin til þess að leggja þeim lið í baráttunni.
„Margrét hefur starfað í stjórnmálum í langan tíma og þegar við fengum fregnir af því að hún væri á lausu lá beinast við að við myndum heyra í henni, enda góð vinkona okkar margra. Í raun kom það okkur mest á óvart að samstarfsaðilar hennar til tuga ára í Ásgarði hafi ekki verið fyrir lifandis löngu búnir að tryggja sér hennar starfskrafta. Allur framboðslistinn var því sammála og eftir smá samtal sagði Margrét já og við erum himinlifandi.”
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.