MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Á loðnumiðunum. Margt tengt sjávarútvegi heyrir undir nýja stofnun.

Alþingi samþykkti 19. júní, frumvarp Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra um stofnun nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. Lögin taka gildi 1. janúar 2027 og mun stofnunin hefja starfsemi sama dag.

Í fréttatilkynningu segir að með nýju stofnuninni verða verkefni Matvælastofnunar (MAST), Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs sameinuð undir einn hatt. Jafnframt flyst eftirlit með matvælum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til hinnar nýju stofnunar. Þar með verður allt opinbert eftirlit með matvælum á Íslandi á ábyrgð einnar stofnunar.

Starfsstöðvar víða um land

Við uppbyggingu stofnunarinnar verður lögð áhersla á að halda í þá staðbundnu þekkingu og reynslu sem hefur byggst upp hjá þeim stofnunum sem sameinast. Samkvæmt lögunum verður starfsfólk staðsett á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.

„Með þessari nýju stofnun skapast tækifæri til að efla enn frekar starfsemina sem eftirsóknarverðan vinnustað með öfluga fagþekkingu. Þannig verður til öflugt þekkingarsamfélag innan stofnunarinnar með fjölbreyttum tækifærum til starfsþróunar,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni.

Starfsfólk fær forgang

Við gildistöku laganna verða stöður forstjóra Matvælastofnunar, fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis lagðar niður. Jafnframt verða öll störf hjá stofnununum þremur formlega aflögð.

Starfsfólk þeirra mun þó njóta forgangsréttar til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna og verða störfin því ekki auglýst sérstaklega. Einnig verða stofnuð 20 ný stöðugildi vegna þeirra verkefna sem flytjast frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga. Starfsfólk sem hefur sinnt matvælaeftirliti hjá sveitarfélögum fær forgang að þeim störfum.

Forstjóri ráðinn í haust

Embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna verður auglýst á næstu dögum og er gert ráð fyrir að nýr forstjóri taki til starfa í haust og leiði undirbúning að starfsemi stofnunarinnar. „Það eru virkilega spennandi tímar fram undan við að koma nýrri stofnun á laggirnar. Ég er sannfærð um að hér sé að verða til öflug stofnun með sterkt faglegt bakland og fjölbreytt tækifæri fyrir starfsfólk,“ segir Hanna Katrín í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.