Meistaraflokkur karla í Fótbolta unnu glæsilegan sigur á Breiðablik
Eyjamenn unnu magnaðan 3-2 endurkomusigur á Blikum á Kópavogsvelli í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld en eftir að hafa lent 0-2 undir sneru Eyjamenn leiknum sér í hag með þremur mörkum á tíu mínútum.
Blikar náðu tveggja marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks eftir að hafa skorað mark sitt hvoru megin við hálfleikinn, það fyrra eftir glæsilega rispu frá Gísla Eyjólfssyni.
�?að tók Eyjamenn hinsvegar aðeins sjö mínútur að jafna metin en þar voru að verki Hafsteinn Briem og Simon Smidt eftir góðar sendingar frá Aroni Bjarnasyni.
Eyjamenn fullkomnuðu endurkomuna með þriðja markinu stuttu síðar en þar var að verki Smidt eftir að hafa leikið á varnarmann Blika og skorað með föstu skoti í hornið.
Blikar reyndu að breyta til og bæta sóknarleikinn síðasta hálftímann en þrátt fyrir ágætis pressu gekk leikmönnum liðsins illa að skapa færi og náðu fyrir vikið ekki að jafna metin í tæka tíð. www.visir.is greindi frá, hægt er að lesa nánar um leikinn hérna.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
Stelpurnar sækja Fram heim
Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.