Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær
Frá Þjóðhátíð. Ljósmynd/ Bent Marinósson

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð hefur fyrir nokkru náð hámarki í Vestmannaeyjum og síðustu dagarnir fram að hátíðinni fara í lokahnykkinn við að gera Herjólfsdal tilbúinn fyrir þá þúsundir gesta sem leggja leið sína til Eyja, Þetta segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.

Haft er eftir Jónasi Guðbirni Jónssyni, formanni þjóðhátíðarnefndar að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel og að Vestmanneyingar séu tilbúnir að taka á móti gestum helgarinnar. „Þjóðhátíð verður ekki til á nokkrum dögum. Að baki henni liggur mikil vinna fólks sem vinnur að því allt árið að gera hátíðina eins góða og mögulegt er. Svo þegar helgin loksins rennur upp taka Eyjamenn höndum saman og gera það sem þeir kunna svo vel – að taka á móti gestunum sínum,“ segir Jónas.

Veðrið lék gesti Þjóðhátíðar ekki vel í fyrra og bæði rigning og vindur settu svip sinn á hluta helgarinnar. Jónas segir þá helgi hins vegar hafa sýnt vel þann sérstaka anda sem einkennir hátíðina og samfélagið í Vestmannaeyjum.

„Við höfum haldið Þjóðhátíð í alls konar veðri í gegnum tíðina. Í fyrra reyndi verulega á okkur en þá sýndu Vestmanneyingar enn og aftur hversu sterkt samfélagið er og hversu miklu máli gestrisnin skiptir. Fólk hjálpast að, hugsar um gestina sína og leggur sig fram um að allir fari héðan með góðar minningar“

„Miðasalan er farin á fullt og við erum tilbúin. Nú vonum við einfaldlega að sem flestir komi og upplifi Þjóðhátíð með okkur. Við ætlum að taka vel á móti öllum sem leggja leið sína til Eyja og gera okkar besta til að skapa enn eina eftirminnilega helgi í Dalnum,“ segir Jónas.

Nýjustu fréttir

Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær
Undirbúningur Þjóðhátíðar að ná hámarki
Fjórði flokkur kvenna frá ÍBV tók þátt í Rey Cup
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Kópavogsvelli
Golfkerran tók stefnuna fram af Hamrinum
Af miðunum í þjóðhátíðarstuð
Er betra að vita en halda?
ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.