Mikið um sílisfugl í Höfðanum

„Ég er búinn að vera með puttann á púlsinum í allt sumar til að fylgjast með viðkomu lundans í fjöllunum á Heimaey. Það gladdi mjög í dag að sjá allan fjöldann sem sat austan í Stórhöfða en hann hefur ekki verið mikið fyrir það að sýna sig þar,“ segir Stefán Geir Gunnarsson, ljósmyndari og náttúruunnandi á Facebókarsíðu sinni á dögunum og lætur fylgja með nokkrar myndir af lundum með síli sem veit á gott.

„Vonandi lofar þetta góðu. Hringaði Stórhöfða og það var bullandi sílisburður hjá lundanum á öllum hliðum Höfðans. Vonandi að pysjan braggist á eðlilegan hátt í tíma. Það sat hellingur uppi af lunda.“

Nokkrar í viðbót.

Nýjustu fréttir

Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.