Neyðarflugbraut Reykjavíkur lokað fyrir áramót
Í samkomulagi sem undirritað var af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Jóni Gnarr Kristinssyni kemur fram að tilkynnt verði um lokun neyðarbrautar Reykjavíkurvallar (NA/SV brautar) fyrir áramót. Af því má ljóst vera að innanríkisráðherra, borgarstjóri og formaður borgarráðs ætla með því að hunsa vilja 82% landsmanna, 73% Reykvíkinga og liðlega 70.000 einstaklinga sem skrifuðu undir sérstaka áskorun til borgaryfirvalda og Alþingis um óskerta flugstarfsemi til framtíðar í Vatnsmýri.
Neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar er notuð þegar veður eru válind og vindar sterkir úr SV og NA áttum. Brautin er auk þess eina braut sinnar tegundar á SV horni landsins. Verði brautinni lokað er ljóst að upp geta komið tilvik þar sem sjúkra- og farþegavélar verða frá að hverfa með tilheyrandi afleiðingum fyrir sjúklinga og farþega. Umrætt samkomulag gengur því þvert á gefin fyrirheit forsætisráðherra sem sagði orðrétt í fréttum Stöðvar 2 þann 20. águst 2013:
�??�?g myndi að sjálfsögðu helst vilja sjá flugvöllinn í þeirri mynd, sem hann er, þ.e.a.s. þriggja flugbrauta völl. �?að er mjög óheppilegt á allan hátt þessi leið að reyna að þrengja stöðugt meira og meira að flugvellinum, og flytja hann nánast í pörtum úr Vatnsmýrinni, en í rauninni að reyna að gera flugvellinum ókleyft að starfa þarna. �?að er stefna, sem að ríkið þarf að koma í veg fyrir að nái fram að ganga.�??
Hjartað í Vatnsmýri varar við þeirri alvarlegu stöðu sem nú er upp komin í málefnum Reykjavíkurvallar. Miklu skiptir að bíða niðurstöðu nefndar Rögnu Árnadóttur um framtíðarstaðsetningu flugvallar á Höfuðborgarsvæðinu en sú niðurstaða er væntanlegt fyrir árslok 2014. Hættulegt er að ráðast í lokun neyðarbrauta og byggingu íbúðarhúsa á vallarsvæðinu sama tíma og nefndin er að störfum.
Tilkynning frá Hjartanu í Vatnsmýri.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.