Niðurgreiðslur milda hækkanir
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Hækkanir á gjaldskrá HS Veitna hafa verið í hámæli í Eyjum undanfarna daga. Eyjar.net hefur gert málinu góð skil og mun halda því áfram í næstu viku.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri gerir málið að umtalsefni á facebook-síðu sinni í dag.

Þar segir hún að bæjarráð Vestmannaeyja hafi mótmælt harðlega hækkunum á húshitunarkostnaði í Eyjum og óskað eftir skýringum hjá HS-veitum, Orkustofnun og orkumálaráðuneytinu.

Varmadælustöðin virðist alls ekki skila neinni lækkun

„HS- veitur hafa sérleyfi og við íbúar getum bara skipt við það fyrirtæki þegar við kaupum varmaorku til húshitunar. Það er umhugsunar efni að varmadælustöðin virðist alls ekki skila neinni lækkun á gjaldskrá eins og lagt var upp með að hún ætti að gera.
Gríðarmiklar hækkanir hafa verið síðan í september, eða um 30% þegar allt er tekið með.
Á fundi núna í vikunni með fulltrúum Orkustofnunar fékkst staðfest að orkumálaráðherra hefur lagt til, og það verið samþykkt, að auka niðurgreiðslu til íbúa í Vestmannaeyjum vegna húshitunar. Niðurgreiðslan var 147,80 kr./m³ en hækkaði í 158,74 kr./m³ 1. september 2023 og aftur í 201,06 kr./m³ frá 1. janúar 2024.
Fyrri hækkun niðurgreiðslna átti að koma fram á reikningum frá 1. september vegna hækkunar HS-veitna, en skilaði sé einhverra hluta vegna ekki til notanda. Orkustofnun upplýsti að þessi hækkun á niðurgreiðslum fyrir þessa mánuði myndi skila sér að fullu á næstu reikningum HS- veitna. Síðasta hækkun niðurgreiðslunnar á að koma inn á reikninga frá 1. janúar 2024.
Staðan er því sú að ríkið hefur hækkað sína niðurgreiðslu frá 1. september um 27 % til að mæta hækkunum HS-Veitna á gjaldskrá til húshitunar í Vestmannaeyjum. Þetta mun skila sér til íbúa á næstu reikningum og því milda mjög þær hækkanir sem hafa verið á gjaldskrá HS-veitna.
Bæjarráð Vestmannaeyja og aðrir kjörnir fulltrúar leggja sig alltaf fram fyrir íbúa Vestmannaeyja í öllum málum.“

segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.

https://eyjar.net/rumlega-30-haekkun/

https://eyjar.net/haerra-verd-og-minni-hiti/

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.