Nökkvi Már áfram í Eyjum
ibv-breidablik_2023_DSC_0538
Frá leik ÍBV í fyrra. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Már Nökkvason hefur framlengt samning sinn við ÍBV en samningurinn gildir út árið 2026. Það er mikið gleðiefni fyrir knattspyrnudeildina að Nökkvi hafi ákveðið að framlengja til næstu þriggja ára, segir í frétt á heimasíðu ÍBV.

Nökkvi sem er Eyjamaður ólst upp hjá Stjörnunni og lék þar upp alla yngri flokkana en hann skipti sumarið 2017 yfir til ÍBV og hefur leikið með liðinu samhliða námi í Bandaríkjunum síðan þá. Fyrst lék Nökkvi með meistaraflokki ÍBV í Lengjubikarnum fyrir leiktíðina 2018 og svo með KFS sumarið 2018. Hann lék í efstu deild með ÍBV árið 2019 og næstu tvö tímabil með ÍBV í Lengjudeildinni.

Síðustu tvö tímabil hefur Nökkvi, sem spilar mest í öftustu línu en getur einnig leyst stöður inni á miðjunni, spilað 15 leiki fyrir ÍBV í deild og hefur einnig tekið þátt í öllum leikjum ÍBV í Lengjubikarnum síðustu vikur

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.