Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Kynnti nýjustu bók sína, Vísnagátur úr Vestmannaeyjum, afhenti Grunnskólunum bókagjöf og rifjaði upp einstaka sögu um fyrsta flutning lagsins Heimaslóð á fjölmennri samkomu á Bókasafni Vestmannaeyja
F.v. Paula Corrales, Ísak Máni Jarlsson, Hersir Sigurgeirsson, Sigurveig Steinarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurgeir Jónsson, Dís Sigurgeirsdóttir, Fanney Sigurgeirsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir og Lovísa Ingibjörg Jarlsdóttir.

Í gær, á síðasta degi goslokahátíðar fór fram kynning á nýjustu bók Sigurgeirs JónssonarVísnagátur úr Vestmannaeyjum, á Bókasafninu. Bókin er sú fimmtánda sem Sigurgeir gefur út, en jafnframt sú fyrsta sem hann semur í bundnu máli. Líkt og flestar fyrri bækur hans tengist hún Vestmannaeyjum með einum eða öðrum hætti, en Sigurgeir hefur alla tíð verið ötull við að halda merkjum byggðarlags síns á lofti.

Fyrri hluti bókarinnar eru hefðbundnar vísnagátur þar sem hver lína vísar í ákveðið orð sem á að finna, en seinni hlutinn eru vísur þar sem lesa má orðin beint út úr ákveðnum hluta vísunnar og er það nýmæli. Á kynningunni fór Sigurgeir yfir efni bókarinnar og gaf gestum kost á að spreyta sig á nokkrum örnefnagátum úr bókinni, sem þeir áttu mislétt með að leysa.

 

Anna Rós, skólastjóri Hamarsskóla, tekur við bókagjöfinni.

 

Við þetta tækifæri afhenti Sigurgeir Grunnskólunum í Vestmannaeyjum tuttugu eintök af bókinni til hvors skóla. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla, var viðstödd fyrir hönd skólanna og veitti gjöfinni viðtöku. Sigurgeir kvaðst vona að bókin gæti nýst nemendum til að kynnast betur sögu, örnefnum og menningararfi Vestmannaeyja.

Sigurgeir kvaðst vona að bókin gæti nýst nemendum til að kynnast betur sögu, örnefnum og menningararfi Vestmannaeyja.

Þá sagði Sigurgeir frá kynnum sínum af Ása í Bæ allt frá unga aldri og hvernig með þeim tókst góður kunningsskapur. Hann rifjaði upp hvernig Ási hvatti hann eindregið til skrifta og ýtti þannig undir þann áhuga sem síðar leiddi til umfangsmikilla ritstarfa og útgáfu fjölmargra bóka.

Meðal þess sem Sigurgeir sagði frá var eftirminnileg saga frá sumrinu 1972. Þá bjó hann tímabundið í Hásteinsblokkinni. Hann og Bjarnhéðinn voru saman utan við blokkina þegar Ása bar að garði og var honum boðið inn. Í stofunni var gítar og Ási spurði hvort strákarnir vildu ekki heyra nýjustu afurðina, en það var lag eftir Alfreð Washington, sem Ási hafði sett við texta. Var því lagið frumflutt þarna í stofunni hjá Sigurgeiri. Lagið hefur lifað með Eyjamönnum allar götur síðan en þarna var lagið Heimaslóð flutt í fyrsta skipti fyrir áheyrendur.

Í framhaldi af þeirri frásögn fluttu þau feðgin, Jarl Sigurgeirsson og Lovísa Ingibjörg Jarlsdóttir, lagið fyrir gesti. Jarl spilaði á gítar og söng en Lovísa lék á saxófón, við góðar undirtektir áheyrenda.

 

Prýðis mæting var og fólk ánægt með það sem Sigurgeir hafði fram að færa.

 

Prýðis mæting var á viðuburðinn og létu gestir vel að honum, enda fræðandi og skemmtilegur eins og Sigurgeirs var von og vísa. Það er mikill fengur fyrir byggðarlag að eiga menn eins og Sigurgeir sem láta sér annt um menningararfleifðina og leggja af mörkum til að viðhalda henni.

Bókin er fáanleg í Eymundsson.

Nýjustu fréttir

Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.