Nýja vatnsleiðslan tilbúin til flutnings til Eyja
Lögnin er komin um borð í skip. Ljósmynd/Vestmannaeyjar.is

Framleiðslu nýju almannavarnavatnsleiðslunnar NSL-4 er lokið og undirbúningur hafinn að flutningi hennar til Vestmannaeyja. Frá þessu greina bæjaryfirvöld á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.

Þar segir að framleiðandinn, NOV hafi afhent leiðsluna og tók fyrirtækið Subsea 7, sem annast flutning og útlagningu hennar, við endastykki leiðslunnar á mánudag.

Vel hefur gengið að spóla leiðslunni inn á tromlu og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á fimmtudag. Að því loknu tekur við fjögurra til fimm daga sigling til Vestmannaeyja. Þegar skipið kemur til Eyja hefst lokaáfangi verkefnisins, en þá verður almannavarnavatnsleiðslan lögð milli lands og Eyja.

Um er að ræða mikilvægan áfanga í verkefninu, sem ætlað er að auka afhendingaröryggi neysluvatns til Vestmannaeyja. Nýja leiðslan verður lögð til hliðar við núverandi leiðslu, NSL-3, sem skemmdist í nóvember 2023.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.