Nýr orgelsjóður og 100 ára afmæli KFUM

Sunnudaginn 1.desember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður nýr orgelsjóður kynntur til leiks í guðsþjónustunni kl. 13.00. Matthías Harðarson formaður sjóðsins mun kynna sjóðinn fyrir kirkjugestum og fólki gefst færi á að skrá sig í áskrift hjá sjóðnum á staðnum, en einnig verður hægt að skrá sig seinna og fá nánari upplýsingar hjá Matthíasi.

Þann 30. nóvember  eru liðin 100 ár frá stofnun KFUM hér í Vestmannaeyjum.

Félagið hefur allt frá stofnun verið í miklu og góðu samstarfi við Landakirkju, enda var einn af stofnendum félagsins og jafnframt fyrsti formaður félagsins sr. Sigurjón Þ. Árnason, sem  kom hingað til Eyja í upphafi ársins 1924 og var prestur í Landakirkju í rúmlega 20 ár.  Með honum í stjórn voru Páll V.G. Kolka læknir, Steinn Sigurðsson klæðskeri, Þorbjörn Guðjónsson bóndi á Kirkjubæ og Bjarni Jónsson verslunarmaður.

Um 130 strákar voru í félaginu við stofnun í yngri og eldri deild.  Fyrstu verkefni félagsins voru biblíufyrirlestrar á heimilum stjórnarmanna, en auk þess voru samverur á sunnudagskvöldum og einnig hafði félagið umsjón með sunnudagaskólanum í Landakirkju.

Tveimur árum síðar var svo KFUK stofnað og voru 95 stúlkur sem stóðu að stofnun þess. Árið 1925 var farið af stað með söfnun fyrir húsnæði KFUM&K og var húsið reist við Vesturveg 5 og vígt 9. janúar 1927.

Húsið varð mikil lyftistöng fyrir starfsemi félagsins og má segja að staðsetningin hafi verið einkar góð, enda miðsvæðis í bænum allt fram að gosi, en eftir gos er húsið komið í jaðar bæjarins.

Í janúar 1929 var komið á fót sjómannastofu, enda þótti sýnt að sá mikli fjöldi sjómanna sem hér var á vertíð vantaði húsnæði til að koma saman undir kristnum formerkjum. Þessi starfsemi varð til að efla félagið enn frekar og árið 1968 var hin eiginlega sjómannstofa byggð sunnan við aðalbygginguna og var íbúð á efri hæðinni.

Árið 2018 var ákveðið að selja húsnæðið, enda var það orðinn all nokkur baggi á félaginu og fóru allar tekjur í viðhald sem ekki sá fyrir endann á.

Öll starfsemi félagsins fer nú fram í safnaðarheimli Landakirkju en Trausti Mar Sigurðarson hefur umsjón því starfi sem á vegum félagsins er.

Stjórn félagsins í dag er skipuð sr. Guðmundi Erni Jónssyni formanni, Gísla Stefánssyni ritara, Ragnheiði Perlu Hjaltadóttur ritara og meðstjórnendunum Brynju Rut Halldórsdóttur og Snorra Rúnarssyni.

Á vormánuðum er stefnt á að halda uppá 100 ára afmælið, enda vonast stjórnin til að kosningar séu þá ekki að flækjast fyrir þeim fagnaðarlátum sem þá verða.

Frá Landakirkju.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.