Nýsköpun, markaðssetning og framtíðin

Þriðjudaginn 12. febrúar var Siglfirðingurinn Róbert Guðfinnsson með gríðarlega áhugavert erindi í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.  Mikill áhugi var fyrir erindi Róberts, enda mættu á fimmta tug í Setrið til að hlýða á erindið.  Yfirskrift erindisins var Nýsköpun, markaðssetning og framtíðin.

Erindi sínu skipti Róbert í 3 hluta:  vörumerki, líftækni og fiskeldi.  Meðan á erindinu stóð svaraði hann spurningum úr sal.

Róbert tók dæmi um vel heppnaðar aðgerðir í markaðssetningu í heiminum og tengdi það við íslenskan sjávarútveg. Einnig fjallaði hann um áhugaverða nálgun sem fyrirtæki á Íslandi hefur farið í markaðssetningu og vörumerkjastjórnun (e. branding) á sjávarafurðum og ný tækifæri sem eru að skapast með aukinni upplýsingamiðlun.  Miklar breytingar eru að eiga sér stað í markaðssetningu sjávarafurða að mati Róberts.

Nýsköpun var rauði þráðurinn í erindinu og tengdi Róbert með skýrum hætti umhverfi nýsköpunarverkefna og fjármagn sem þarf til slíkrar starfsemi.

Róbert ræddi reynslu sína úr líftækni og hvaða innviðir þurfa að vera í samfélögum til að slík starfsemi geti þrifist og það hvernig hægt er að tengja vörur og þjónustu við sveitarfélög í markaðssetningu.  Lífsgæði í samfélögum eru ofarlega í huga Róberts.  Svo fyrirtæki geti blómstrað og vaxið, að mati Róberts, þarf góð lífsgæði fyrir íbúa. Róbert hefur lagt mikið upp úr þessu í sinni atvinnuuppbyggingu á Siglufirði.

Hann ræddi um nýja hluti sem eru að gerast í líftækni, m.a. nýjar afurðir sem geta mögulega komið í stað hefðbundins hráefnis í fiskeldi s.s. fiskimjöl og lýsi.

Að lokum setti Róbert fram spennandi hugmyndir um úthafsfiskeldi og hvatti Eyjamenn til að skoða möguleika á slíku eldi í kringum Vestmannaeyjar. Að hans mati geta Vestmanneyjar orðið þjónustumiðstöð fyrir slíka starfsemi.

Hægt verður að lesa viðtal við Róbert í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út miðvikudaginn 20.febrúar.

Nýjustu fréttir

Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.