Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
eythor_h_cr
Eyþór Harðarson

Aðsend grein

Eyþór Harðarson

Nú hefur fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Eyjum ákveðið að hafa prófkjör við val á framboðslista XD fyrir kosningar til bæjarstjórnar 16. maí nk. . Eftir ítarlega umfjöllun  varð niðurstaðan án mótatkvæða  að efna til prófkjörs 13. mars nk. En með þeim hætti fær lýðræðið að njóta sín best.  Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fá það hlutverk að raða  á  framboðslistann og fagna ég þeirri leið.  Hlaut  1. sæti í rúmlega 900 manna  prófkjöri í mars 2022 og hef verið oddviti okkar Sjálfstæðismanna á því kjörtímabili sem  senn er að líða.  Hef lagt mig fram í bæjarráði og bæjarstjórn að efna þau verkefni sem voru á stefnuskrá  XD fyrir kosningarnar 2022.  

Bæjarfélög á landsbyggðinni eiga undir högg að sækja gagnvart ríkisvaldinu og  mikið  verk að snúa við þeirri þróun. Rekstur grunn- og leikskóla og félagsþjónustan í heild sinni eru mikið metnaðarmál og þar fer fagmennskan með ferðina.  Grunnurinn að velferðinni er öflugt atvinnulíf í Eyjum til lands og sjávar. Samstarf  meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn hefur gengið vel á kjörtímabilinu. Eðlilega koma upp ágreiningsmál, en oftast tekist að ná lendingu. Traust og góð samvinna í bæjarstjórn mun skila okkur meiri grósku og öflugri byggð til framtíðar.  

Eftir nokkra umhugsun og hvatningu bæjarbúa hef ég ákveðið að bjóða mig fram til að leiða  D-lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í kosningum til bæjarstjórnar 16. maí nk.

Um leið óska ég eftir stuðningi í 1.sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem fer fram föstudaginn 13. mars 2026.

 

Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.