Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands
Mynd: Jón Magnússon

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2024. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi. 

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.  

Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun. Byggðaþróunarfulltrúar SASS eru staðsettir víða á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf. Við bendum einnig á ráðgjafasíðu SASS, þar sem er að finna upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknarskrif. 

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum og þarf að hafa lögheimili á Suðurlandi. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkaaðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.  

Kynningarfundur um sjóðinn verður haldinn á Teams  13. febrúar kl. 12:15 verður hann auglýstur nánar síðar. 

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 5. mars 2024

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.