Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að óska formlega eftir því við Minjastofnun Íslands að friðun Blátinds VE 21 verði aflétt. Markmiðið er að heimilt verði að farga bátnum í samræmi við gildandi lög og reglur.
Blátindur var eina málið á dagskrá ráðsins á fundi þess í gær. Á fyrri fundi hafði hafnarstjóra verið falið að upplýsa Minjastofnun um áform ráðsins varðandi förgun bátsins. Í svari stofnunarinnar kom fram að Blátindur væri friðaður samkvæmt lögum um menningarminjar. Því þyrfti ráðið að óska formlega eftir afléttingu friðunar áður en hægt væri að farga honum.
Í umfjöllun ráðsins var meðal annars vísað til tveggja ástandsskoðana sem gerðar voru á Blátindi árin 2020 og 2021.
Guðmundur Guðlaugsson húsasmiður, sem hefur áratuga reynslu af vinnu við eikarbáta, skoðaði Blátind árið 2020. Niðurstaða hans var að ekki væri raunhæft að gera bátinn upp vegna mikils kostnaðar. Hann taldi nánast allt ofan dekkbita ónýtt, meðal annars dekk, meginþiljur, stýrishús og innri klæðningu. Þá þyrfti að ráðast í umfangsmiklar viðgerðir á skansklæðningu, lunningu, lúkar, styttum, öldustokki og fleiri hlutum bátsins.
Guðmundur áætlaði á þeim tíma að það myndi kosta að minnsta kosti 100 milljónir króna að koma Blátindi í sómasamlegt ástand sem sýningarbát. Kostnaður við að gera hann haffæran gæti orðið um tvöfalt hærri.
Ágúst Österby skoðaði bátinn árið 2021. Hann taldi skrokkinn mjög heillegan en dekkið og flest ofan þilja illa farið. Að hans mati voru meginhlutar bátsins í lagi og mögulegt væri að koma honum í siglingarhæft ástand fyrir um 90 milljónir króna.
Framkvæmda- og hafnarráð segir álit sérfræðinganna mikilvægt við ákvörðun um framtíð Blátinds. Niðurstaða ráðsins er að kostnaður við uppgerð bátsins sé það mikill að ekki sé forsvaranlegt að hafnarsjóður Vestmannaeyja ráðist í verkefnið.
Til samanburðar bendir ráðið á að áætlaður kostnaður við uppgerðina sé áþekkur þeirri fjárhæð sem nýlega var varið til kaupa á litlum dráttarbát sem nýtast muni við verkefni Vestmannaeyjahafnar.
Hafnarstjóra, formanni og varaformanni framkvæmda- og hafnarráðs var falið að senda Minjastofnun erindi og óska eftir að friðun Blátinds VE 21 verði aflétt.
