�?ska eftir upplýsingum um mannaferðir við FES á laugardag

Kl. 19:45 laugardagskvöldið 16. desember barst lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynning um bruna í Fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins við austurenda �?gisgötu. Allt tiltækt slökkvilið bæjarins var ræst út svo og Björgunarfélag Vestmannaeyja.

�?egar að var komið var mikill eldur í geymsluþró austan við verksmiðjuhúsið og logaði eldur upp úr þaki. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins en nokkur hætta skapaðist þar sem töluverður eldsmatur var þrónni og hún tengd verksmiðjuhúsinu. �?ar var einnig töluvert magn af edikssýru sem lak niður þegar gat kom á geymsluílát sem hún var í. �?skað var eftir aðstoð eiturefnadeildar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og komu til Eyja slökkviliðsmenn með efni og búnað til aðstoðar slökkviliði Vestmannaeyja. Á meðan á slökkvistarfi stóð var lokað fyrir umferð um miðbæinn til öryggis. Slökkvistarfi lauk á ellefta tímanum.

Mikil mildi var að ekki fór verr og má þar bæði þakka stilltu veðri og skjótum viðbrögðum Slökkviliðs Vestmannaeyja auk fjölmargra sem komu til aðstoðar á vettvangi. Lögreglan vill að því tilefni þakka öllum þeim er komu að þessu slökkvistarfi fyrir gott starf.

Rannsókn að brunanum stendur nú yfir og komu tveir menn frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík á mánudag til að sinna tæknirannsókn á staðnum. �?á er von á aðstoð frá rannsóknardeildinni á Selfossi til Eyja í kvöld til aðstoðar deildinni í Vestmannaeyjum við rannsókn á orsökum brunans.

Af þessum tilefni vill Lögreglan í Vestmannaeyjum beina þeim tilmælum til fólks sem gæti haft einhverjar upplýsingar um þetta mál að hafa samband í síma 481 1665. Allar upplýsingar, sama hvað smávægilegar sem þær eru, og hjálpað gætu til við að upplýsa upptök brunans eru vel þegnar. �?skað er eftir upplýsingum um mannaferðir nálægt brunastað en einnig grunsamlegt háttalag t.d. með eldfæri eða eldfim efni, brunalykt sem bent gæti til nálægðar við vettvang o.s.frv.
Lögreglan í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.