Óvenju fá fíkniefnamál á Þjóðhátíð
DSC 8946
Brekkan var þéttsetin í gærkvöldi. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur.

​Nóttin var fremur tíðindalítil hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.  Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri segir aðspurður í samtali við Eyjafréttir/Eyjar.net að engin tilkynning um kynferðisbrot hafi komið á borð lögreglu enn sem komið er.

Tilkynnt var um nokkrar líkamsárásir í nótt og er einn í klefa vegna þess, en heilt yfir gistu fimm þjóðhátíðargestir fangageymslur. Tveir þeirra eru enn inni og bíða þess að fara í skýrslutöku.

Gerðu upptækar tvær leikfangabyssur

Karl Gauti segir fá fíkniefnamál hafa komið upp. „Óvenju fá, ég man ekki eftir svona fáum málum.“ segir hann. Aðspurður um viðbúnað á þessu sviði segir hann að lögreglan sé með  mikinn kraft í fíkniefnaleitinni, meðal annars tvo hunda.

Þá segir Karl Gauti að gerðar hafi verið upptækar tvær leikfangabyssur hjá tveimur gestum. Ástæða þess var að byssurnar eru mjög raunverulegar. Hann segir veðrið sé ekki enn til trafala. „Við sjáum hvernig þetta gengur og munum opna íþróttahúsin ef þurfa þykir. Það fauk eitt hvítt tjald í nótt sem ekki hafði verið hælað nægilega vel niður.“

Gerðu upptæk eggvopn

Nýjustu fréttir

Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Systurskipin landa fullfermi
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.