Ráðinn yfirþjálfari í Austurríki
Erlingur Birgir Richardsson. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá akademíu austurríska handknattleiksfélagsins Handball Mödling, skammt frá Vínarborg.

Félagið var sett á laggirnar 2018 af austurrísku handknattleiksmönnunum Stefan Higatzberger og Conny Wilczynski. Hefur það frá upphafi einbeitt sér að þjálfun barna og unglinga með framtíðina í huga. Greint er frá þessu á handboltavefnum Handbolti.is.

Tilkynnt var um ráðningu Erlings til félagsins í morgun. „Ég mun leggja línurnar og félagið er að kaupa mína hugmyndafræði sem ég kynni fyrir þjálfurum og leikmönnum,“ sagði Erlingur við handbolta.is. Erlingur er afar spenntur fyrir þessu nýja verkefni sem lýtur fyrstu og fremst að uppbyggingu ungmennstarfs og þjálfun. Lítt plægður akur er fyrir handbolta í Austurríki.

Erlingur mun áfram búa í Vestmannaeyjum en sækir Mödling heim með reglubundnum hætti í sex til sjö lotum yfir æfinga- og keppnistímabilið og verður þá úti í 70 til 80 daga alls, segir í frétt handbolta.is. Nánar má lesa um málið hér.

Nýjustu fréttir

Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.