Ráðleggja veiðar á 8589 tonnum af loðnu
_DSC0145
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Meira magn af loðnu mældist fyrir norðvestan land nú í febrúar en í janúar mælingum Hafrannsóknastofnunar. Það er meginástæðan fyrir uppfærðri ráðgjöf upp á 8589 tonn, segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, ásamt uppsjávarveiðiskipunum Polar Ammassak og Heimaey hafa verið við loðnumælingar norður af Íslandi síðan 8. febrúar (mynd 1). Ekkert var að sjá af fullorðinni loðnu á yfirferðasvæði veiðiskipanna tveggja meðan tæp 98.2 þúsund tonn mældust á Árna Friðrikssyni norðvestan við land (mynd 2).

Í janúar mældust um 180 þúsund tonn austur af landinu og saman með febrúarmælingunni vestan til er heildarmæling vetrarins um 278.20 þúsund tonn. Til samanburðar þá var stærð veiðistofnsins metinn 318 þúsund tonn síðast liðið haust. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar byggir á samþykktri aflareglu stjórnvalda þar sem haustmæling vegur 1/3 á móti 2/3 af niðurstöðu vetrarmælinga að teknu tilliti til óvissu í matinu og til metins afráns.

Mynd 1. Yfirferð skipa í loðnumælingum dagana 8.-19. febrúar 2025.
Mynd 2. Leiðarlínur þriggja skipa í loðnumælingu dagana 8.-19. febrúar 2025 (Árni Friðriksson ljósblár, Polar Ammassak grænn, Heimey rauð) og þéttleiki loðnu samkvæmt bergmálsmælingum.

 

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.