Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu í Vestmannaeyjum hefur nú náð 101,3 metra dýpi. Ljósmynd/eyjagong.is

Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu er nú komin niður á 101,3 metra dýpi. Samkvæmt nýrri uppfærslu á vef Eyjaganga er verkefnið komið á betra skrið á ný eftir tafir síðustu daga.

Eyjafréttir greindu áður frá því í síðustu viku að samgönguerfiðleikar milli lands og Eyja væru að hafa áhrif á framgang rannsóknarborana vegna Eyjaganga, þar sem tafir á ferðum höfðu áhrif á verkáætlun og kostnað verkefnisins. Þá var staðan sú að borunin var komin niður á 66,3 metra í þeirri holu sem nú er unnið í. Áður höfðu menn náð niður á 84 metra áður en bakslag varð og hefja þurfti vinnu að hluta til að nýju.

„Við vonumst til þess að við séum nú komin á beinu brautina í boruninni. Holan er orðin mjög stöndug og góð, sem gefur okkur góðar vonir um áframhaldandi framgang verksins,“ er haft eftir Benedikti Óskari Steingrímssyni, jarðfræðingi hjá Völubergi.

Rannsóknarholan EG-01 gegnir lykilhlutverki í undirbúningi Eyjaganga, þar sem markmiðið er að afla ítarlegra upplýsinga um berggrunn og jarðlög á svæðinu.

Nýjustu fréttir

N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.