Rekstrarkostnaður leikskólaplássa aukist verulega milli ára

Á fundi Fræðsluráðs Vestmannaeyja var farið yfir umsóknir í leikskóla og stöðu inntökumála. Framkæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusvið fór yfir vinnuskjal með upplýsingum um rekstararkostnað leikskólaplássa sem hefur aukist verulega milli ára, m.a. vegna fjölgunar barna í yngsta aldurshópi. Jafnframt fór hann yfir kostnaðartölur við leikskólavist hvers árgangs.

Ráðið óskar eftir því að það verði útfært eftir þeim umræðum sem fóru fram á fundinum svo hægt sé að taka ákvörðun á næsta fundi ráðsins. Til þess að fylgja markmiðum um að öll 12 mánaða börn fái leikskólapláss sem fyrst eftir 1 árs aldur þarf að fjölga leikskólarýmum. Ef það næst ekki sem fyrst þarf að gera ráð fyrir að nýta laus pláss/rými í Víkinni.

Nýjustu fréttir

Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.