Reykjavíkurflugvöllur áfram mikilvægur í sjúkraflugi

Á fundi borgarráðs Reykjavíkur í gær fór fram umræða um eldgos á Reykjanesskaga. Var það fyrsta mál á dagskrá fundarins. Í lok þeirrar umræðu lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram eftirfarandi bókun:

Þriðja eldgosið á Reykjanesskaga á jafnmörgum árum sýnir að nýtt gostímabil er hafið á svæðinu, sem gæti staðið öldum saman. Jarðfræðingar benda á að það mynstur virðist vera að skapast að gosvirknin færist í norðaustur frá Fagradalsfjalli og þar með nær höfuðborgarsvæðinu. Þessi þróun sýnir að hugmyndir um lagningu nýs alþjóðaflugvallar í Hvassahrauni eru óraunhæfar vegna jarðhræringa og eldgosahættu eins og jarðvísindamenn og atvinnuflugmenn hafa bent á árum saman.

Reykjavíkurflugvöllur mun því áfram gegna mikilvægu hlutverki í innanlandsflugi, sjúkraflugi og björgunarflugi og brýnt að ekki verði þrengt að vellinum frekar en orðið er eins og til stendur að gera með nýrri byggð í Skerjafirði. Sjúkraflugið hefur aukist mikið á síðustu árum og er nú almennt viðurkennt sem mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þá gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki í millilandaflugi sem varaflugvöllur Keflavíkurflugvallar.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.