Safnahelgin nálgast – fjögurra daga veisla í boði

Dagana 2.-5. nóvember næstkomandi verður blásið til hinnar árlegu Safnahelgi í söfnum Vestmannaeyja. Meðal viðburða má nefna að á fimmtudeginum er ætlunin að  fremja einstakan listagjörning þar sem Ingvar Björn og félagar baða Heimaklett í óvæntu og nýju ljósi.

Á föstudeginum verður tónlistardagskrá í Eldheimum í fyrsta lagi til minningar um Stellu Hauks sem hefði orðið sjötug nú í nóvember og í öðru lagi til minnast Surtseyjargossins fyrir réttum sextíu árum.

Lögin hennar Stellu og vinsælustu lögin frá 1963 og 4 verða leikin og sungin. Flytjendur: Andrea Gylfadóttir og Bíóbandið ásamt gestasöngvurum.

Helgin hefst síðan á því að í Safnahúsinu er opnuð skemmtileg sýning á verkum Gísla J. Ástþórssonar og um kvöldið munu rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Auður Jónsdóttir kynna nýjar bækur sínar í Eldheimum.

Safnahelginni lýkur með Sögu og súpu í Sagnheimum á sunnudeginum þar sem Guðrún Erlingsdóttir fær til sín góða gesti í tilefni af 50 ára Goslokum.

Mynd: Guðrún fær til sín góða gesti.

Nýjustu fréttir

Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 
Elliði með stórleik gegn Kiel
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.