Samgöngufundi frestað vegna samgangna

Ákveðið hefur verið að fresta íbúafundi um samgöngur við Vestmannaeyjar, sem fyrirhugað var að halda í kvöld, vegna fjarveru innviðaráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Samgöngur milli lands og Eyja voru með þeim hætti í dag að þær hentuðu ekki ráðherranum. Þó er rétt að geta þess að bæði var siglt og flogið til Eyja í morgun. Ráðherrann hafði ætlað sér að koma með flugi kl 17 en því var aflýst vegna veðurs. Forstjóri Vegagerðarinnar kom með Herjólfi frá Þorlákshöfn í morgun en engu að síður þykir rétt að fresta fundinum úr því að hinn pólitíski ábyrgðarmaður samgangnanna getur ekki sótt hann. Fundurinn verður auglýstur þegar ný tímasetning hefur fundist.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.