Gugga í gúmmíbát er á hraðari siglingu en Herjólfur þessa dagana. Lítið fer fyrir vinsældum Vegagerðarinnar í Vestmannaeyjum, en svör voru að berast um aðgerðir, til að brúa bilið þar til Landeyjahöfn opnast. Þrátt fyrir vel meinandi greinaskrif og góða greiða, þá gerðist lítið fyrr en fólk sýndi samstöðu. Engu að síður bíður bæjarfélagið brjálað eftir Herjólfi og blæðir á meðan ástandið er með þessum hætti. Við lifum á loforðum sem sífellt eru svikin, af fólki sem hefur of lítil völd til að gefa þau. Hættum með innantóm lokkandi loforð, sameinumst frekar og fáum aðra með okkur í lið, því sameinuð sigrum við.
Því er engu logið að allir flokkar í framboði séu sammála því að aðgerða er þörf. Enn, aðgerða er þörf þegar vel viðrar, þegar Herjólfur siglir í Landeyjarhöfn, lífið er ljúft og við brosum bara út að eyrum, vitandi að veturinn nálgast með sínum vitlausu veðrum. Ef hús okkar lekur, þá hlægjum við ekki hástöfum þegar sólin skín, heldur vinnum að viðgerðum þegar vel viðrar. Verum viðbúin, lofum ekki bara og leiðindin munu koma, án þess að nokkur geti rönd við reist. Það eru meiri líkur en minni að fá fram góð loforð þegar lóan syngur og sól skín í heiði heldur en þegar of seint í rassinn er gripið. Sýnum skynsemi og semjum snemma, hættum að setja fram hriplek loforð sem enda svo sem leiðindi þegar á líður.
Bestu loforðin sem við getum gefið er að gæta hagsmuna heildarinnar. Ekki gefa loforð sem láta okkur líða betur, en eru jafn gisin og gömul tuska. Ekki lofa því sem ekki verður við staðið, bara af því að við erum í framboði, ekki bjóða uppá gamlar tuggur. Kjósendur eru klókir og sjá í gegnum blekkingarvefinn sem spunninn er í kringum kræsileg og kjánaleg loforð. Gefum gaum að þeim loforðum sem við gefum, gefum loforð sem bæta búsetu, ekki bara lofa því sem lofað hefur verið af gömlum vana, með nýju fólki koma nýjar vonir Vestmannaeyingum til handa, við ætlum að vinna fyrir ykkur, því get ég lofað
Arndís María Kjartansdóttir
Höfundur er oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans.