Samgöngur til Eyja til umræðu á Alþingi í dag
Innviðaráðherra mætir á opinn fund um stöðu samgangna og framtíð ferjuáætlunar
Halla Hrund Logadóttir undir stýri á björgunarskipinu Þór í heimsókn sinni til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Staða samgangna til Vestmannaeyja verður til umræðu á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag, mánudaginn 18. maí. Gestur fundarins verður Eyjólfur Ármannsson en fundurinn hefst klukkan 15:00 og verður í beinu streymi á vef Alþingis. Fundurinn er jafnframt opinn almenningi og fulltrúum fjölmiðla á meðan húsrúm leyfir.

Það var Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi sem óskaði eftir fundinum á fundi nefndarinnar fyrr í vor. Beiðnin var samþykkt einróma og ákveðið að kalla ráðherra á opinn fund til að fara yfir stöðuna.

Samgöngur raskast verulega

Tilefni fundarins eru þær áskoranir sem verið hafa í samgöngum til og frá Vestmannaeyjum síðustu mánuði, meðal annars vegna stöðu Landeyjahafnar og þeirra erfiðleika sem fylgt hafa rekstri Herjólfs sökum bilana og ófærðar um fyrrgreinda höfn. Í tengslum við fundarbeiðnina hefur meðal annars verið kallað eftir umræðu um langtímaúrræði, varaskipakost og hvort móta eigi heildstæða ferjuáætlun fyrir landið allt.

Fundurinn fer fram í Smiðju við Tjarnargötu í Reykjavík og verður sýndur í beinni útsendingu á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.