Samið við Rohde Nielsen A/S um dýpkun í Landeyjahöfn

Vegagerðin hefur samið við danska dýpkunarfyrirtækið Rohde Nielsen A/S um dýpkun í Landeyjahöfn í febrúar og mars. Samningurinn gildir um dýpkun frá 15. febrúar út marsmánuð þegar umsamin vordýpkun tekur við. Björgun ehf. sinnir þeirri dýpkun samkvæmt núverandi samningi um vor- og haust dýpkanir í Landeyjahöfn.

Rohde Nielsen A/S mun nota dýpkunarskipið Trud R við dýpkunina í Landeyjahöfn. Um er að ræða tilraunaverkefni því beitt verður aðeins öðruvísi aðferðum en hingað til og verður áhugavert að sjá hvort það skilar betri árangri. Staða dýpis í Landeyjahöfn er hinsvegar óvenju góð miðað við árstíma og reynslu liðinna ára. Þá hefur veður og sjólag heimilað siglingar í Landeyjahöfn síðustu daga. En nú skiptir sköpum að nýja skipið á mun auðveldara með siglingar í Landeyjahöfn og ljóst að nýi Herjólfur hefur siglt mun oftar til hafnarinnar en Herjólfur III hefði getað.

vegagerdin.is

Nýjustu fréttir

ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.