Samruni Vinnslustöðvarinnar og Ufsabergs útgerðar lögmætur samkvæmt dómi Hæstaréttar
Hæstiréttur staðfesti í dag ákvörðun hluthafafundar í Vinnslustöðinni (VSV) frá 8. október 2014 um samruna VSV og Ufsabergs útgerðar ehf. og ákvörðun um aukningu hlutafjár í VSV og tiltekna ráðstöfun þess í tengslum við samrunann. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Suðurlands frá 25. nóvember 2015. Héraðsdómur Suðurlands féllst á kröfur Stillu útgerðar ehf., félags sem er í eigu Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona og er hluthafi í Vinnslustöðinni, um að ógilda samrunann. Vinnslustöðin áfrýjaði síðan héraðsdómnum til Hæstaréttar og krafðist sýknu af kröfu Stillu útgerðar og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Hæstiréttur dæmdi Vinnslustöðinni í vil að öllu leyti í dag; sýknaði Vinnslustöðina af kröfum Stillu útgerðar og dæmdi Stillu útgerð til að greiða Vinnslustöðinni tvær og hálfa milljón króna í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður fór með mál Vinnslustöðvarinnar fyrir Hæstarétti segist hæstánægður með niðurstöðuna ,,�?g er auðvitað hæstánægður með að þetta deilumál skuli leitt til lykta með svo afgerandi hætti og að samruni félaganna tveggja gangi nú eftir eins og til var stofnað. Héraðsdómurinn í fyrra skapaði bæði eigendum Vinnslustöðvarinnar og fyrrum hluthöfum í Ufsabergi útgerð óvissu sem Hæstiréttur hefur nú eytt.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.