Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
34 af 56 umsækjendum fá ekki að hefja störf vegna aldurs
Börn við störf í Vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar. Fjölskyldu- og tómstundaráð segir óásættanlegt að börn í sama árgangi njóti ekki sömu tækifæra til þátttöku og skorar á Alþingi að breyta lögum um vinnu barna.

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyjabæjar mótmælir harðlega þeirri stöðu að stór hluti barna sem lokið hafa 7. bekk geti ekki tekið þátt í vinnuskóla bæjarins vegna gildandi laga um vinnu barna.

Þetta kemur fram í bókun ráðsins, sem var tekin fyrir í framhaldi af svari frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þar kemur skýrt fram að ekki sé heimilt að ráða til vinnu börn sem ekki hafa náð 13 ára aldri. Vísað er til ákvæða laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerða sem byggja á þeim.

Ráðið segir óásættanlegt að börn í sama árgangi njóti ekki sömu tækifæra og að réttur þeirra til þátttöku í vinnuskóla ráðist af fæðingardegi. Að mati ráðsins feli það í sér mismunun og gangi gegn markmiðum vinnuskólans um að veita ungmennum fyrstu kynni af atvinnulífi og samfélagsþátttöku.

Samkvæmt bókuninni sóttu 56 börn um þátttöku í vinnuskólanum í sumar. Af þeim geta 34 ekki hafið störf þegar vinnuskólinn byrjar þar sem þau hafa ekki náð 13 ára aldri.

Ráðið samþykkti að þau börn sem verða 13 ára á meðan vinnuskólinn stendur yfir geti hafið störf um leið og þau ná þeim aldri. Þrátt fyrir það verða 25 börn eftir sem ná ekki 13 ára aldri á starfstíma vinnuskólans og fá því ekki vinnu í sumar. Segir ráðið það afar miður.

Í bókuninni er jafnframt skorað á stjórnvöld og Alþingi að breyta lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum þannig að öllum börnum sem lokið hafa 7. bekk verði tryggður jafn réttur til þátttöku í vinnuskóla, óháð fæðingardegi.

Einnig er óskað eftir því að bæjarstjóri fylgi málinu eftir gagnvart stjórnvöldum og umboðsmanni barna. Ráðið segir að lokum óverjandi að börn í sama árgangi sitji ekki við sama borð þegar komi að þátttöku í vinnuskóla sveitarfélagsins.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.