Seinasta Aglow samvera vetrarins
landakirkja-8.jpg
Á morgun verður seinasta Aglow samvera vetrarins. Eyjar.net/TMS

Seinasta Aglow samvera vetrarins verður miðvikudaginn 1. maí. Þann 1. maí fáum við heimsókn frá Aglow konum í Garðabæ, segir í tilkynningu frá félaginu.

Þær ætla að vera með okkur í bænagöngu og svo um kvöldið. Við komum saman við Landakirkju kl. 17.00 og leggjum af stað kl. 17.10 og göngum um bæinn og stoppum á nokkrum stöðum og biðjum. Um kl. 18.00 komum við upp í safnaðarheimili og borðum saman góða súpu og brauð. Aglow samveran hefst kl. 19.30 þar sem við syngjum saman og konurnar úr Garðabæ taka þátt í stundinni. Helena Leifsdóttir leiðir hópinn og verður gaman að eiga samfélag saman og það verður uppörvandi að heyra hvatningu kvennanna,,Statt upp, skín þú…“ Jesaja 60.1. Endilega takið þátt í allri dagskránni, en það má koma einungis í gönguna, matinn eða samveruna ef þanning stendur á. Bænagangan er öllum opin, en Aglow samveran er fyrir konur  á öllum aldri.

Nýjustu fréttir

Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.