Semja um kaup á vinnslubúnaði fyrir laxasláturhús
IMG 7584 2
Kristmann Kristmannsson, verkefnisstjóri vinnslu og innkaupa hjá LAXEY, innsiglar samninginn við Jóhann Bæring Gunnarsson, framkvæmdastjóra Ístækni, og Ragnar Inga Kristjánsson vélahönnuði. Mynd/aðsend

Laxey og Ístækni hafa undirritað samning um afhendingu á vinnslubúnaði fyrir sláturhús fyrirtækisins í gæðaframleiðslu á landeldislaxi. Lausnin tryggir fyrsta flokks meðhöndlun hráefnis frá upphafi til enda ferilsins og stuðlar að hámarksgæðum lokaafurðar.

Samningurinn nær yfir afhendingu og uppsetningu alls vinnslubúnaðar, allt frá slátrun að flokkunarlínu. Tækin samanstanda af blæði-/kælitanki, handslæingarlínu, auk þvottakerfis fyrir sjálfvirk þrif búnaðarins.

„Við hjá Laxey teljum mikilvægt að efla og styðja við bakið á íslenskum tæknifyrirtækjum í fiskvinnslulausnum og vissum að Ístækni býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á þessu sviði. Ístækni hefur unnið að lausnum sem við vildum hafa í okkar framleiðslu til að tryggja bestu meðhöndlun og mestu kælingu hráefnis til að hámarka gæði vörunnar.

Samstarf styrkir íslenskan laxaiðnað og undirstrikar mikilvægi þess að fyrirtæki í greininni styðji hvert annað og efli innlenda framleiðslu. Verkefnið er einnig skýrt dæmi um öfluga atvinnusköpun á landsbyggðinni – Ístækni er með starfsemi á Ísafirði, en Laxey rekur landeldi í Vestmannaeyjum, þar sem sláturhús er í undirbúningi,“ segir Kristmann Kristmannsson, sviðsstjóri vinnslu og innkaupa hjá Laxey.

Nýjustu fréttir

Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.