Sex ár og hvað svo? 
Ari Trausti Guðmundsson

Þingmannsferli mínum lýkur núna í haust þar eð ég sækist ekki eftir endurkjöri. Ég náði að vera eitt þing í stjórnarandstöðu og svo heilt kjörtímabil sem hluti stjórnarmeirihluta. Það var meira gefandi en verandi sífellt með gagnrýnisgleraugun á nefinu í aðhalds- og eftirlitsskyni. Sat í tveimur fastanefndum, einni alþjóðanefnd og svo Þingvallanefnd. Mörg þörf þingmál urðu að lögum eða þingsályktunum; nefni málaflokka samgangna, heilbrigðisþjónustu, umhverfis- og loftslags, atvinnuvega, sveitastjórnarstigsins og utanríkissamskipta og sér í lagi það sem ég hef einna mestan áhuga á: Norðurslóðamálin þar sem ég var formaður íslensku norðurheimskautsþingnefndarinnar, og auðvitað loftslagsmálunum. Þróun náttúrufars á báðum heimskautasvæðunum vegur afar þungt í óvissri vegferð mannkyns. Merkileg stefnumótun fór fram, í fyrsta sinn á Alþingi, gjarnan í þverpólitískum vinnuhópum,  t.d. í orkumálum, ferðamálum, landbúnaði, nýsköpun, heilbrigðismálum, náttúruvernd, norðurslóðamálum og loftslagsmálum.

Ég ver ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem framsækna á mörgum sviðum enda þótt sumt hafi veri látið kyrrt liggja eða ekki náðist nothæft samkomulag um. Í samsteypustjórnarlandi eru málamiðlanir lykillinn að sæmilega stöðugu, pólitísku ástandi og bættum innviðum og samfélagsþjónustu. En verandi sósíalisti tel ég margt eftir að gera til að ná nægum jöfnuði og jafnrétti til að Ísland teljist norrænt þingræðis- og velferðarríki með borgaralegt lýðræði og kapítalískt hagkerfi. Sem efnahagskerfi á kapítalisminn sér ekki bjarta framtíð frammi fyrir vaxandi ójöfnuði og loftslagsbreytingum enda byggir hann á stöðugum vexti sem ógnar þolmörkum jafnt náttúru sem samfélagana sjálfra. Breiðara lýðræði, aukið jafnrétti og hringrásasarhagkerfi með samfélagslegri deilingu gæða er að teiknast um leið og öfgahyggja og pópúlismi eflast. Næstu áratugir verða spennandi og afdrifaríkir í pólitískum skilningi.

Landsbyggðaþingmaður verður að reyna að sinna málefnum kjördæmisins en hann er líka þingmaður allra kjördæma. Gæti nefnt mörg sérmál sem tókst að þoka í rétta átt kjördæminu, stundum með samstiga átaki allra 10 þingmannanna. Hvað Eyjar áhærir tókst að þoka samgöngumálum nokkuð áleiðis, heilbrigðisþjónustan hefur rétt úr kútnum þótt t.d. fæðingarþjónustu sé enn ábótavant og menntamálin eru í bærilegum farvegi. Veit að matarkistan Suðurkjördæmi og ferðaþjónustsvæðið í heild á ágæta framtíð í vændum, takist vel til með nýsköpun, menntunar- og búsetuskilyrði, samgöngur og skilgreiningar á þolmörkum náttúru og samfélaga á svæðinu. Hefði viljað hafa rýmri tíma, sem hluti stærri þingflokks, til að ferðast oftar en varð um þetta stóra kjördæmi mitt. Þegar nú er kosið á ný til Alþingis tel ég að VG verði að ná að mynda kjölfestu í burðugri samsteypustjórn sem fetar áfram einstigið að ábyrgu frelsi, jafnrétti og jöfnuði.

 

Ég held áfram mínum störfum sem frá var horfið við kosningarnar 2016; bæti við bókum, jafnt fræðsluefni sem skáldskap, fræði fólk í fjölmiðlum og fyrirlestrum, stunda leiðsögn úti við og mín jarðvísindi eftir því sem býðst og sinni fjölskyldunni oftar en ég náði að gera meðan á þingsetunni stóð. Síðast ekki síst kalla heimalandið og norðurslóðir á mig, svo ég tali nú ekki um borgir og ferðalönd, og þá einkum og sér í lagi fyrir okkur hjónin saman. Mitt líf hefur verið kaflaskipt alla tíð og þegar þessum merka og litríka kafla í samfélagsþjónustu er lokið taka þeir óskrifuðu við. Þakka mikið vel samskiptin við ykkur Eyjamenn í áranna rás.

Höfundur er þingmaður VG

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.