Sjávarútvegssýningin SJÁVARÚTVEGUR 2022/ ICELAND FISHING EXPO 2022 verður haldin 21. – 23. september í LAUGARDALSHÖLL. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar framkvæmdastjóra sýningarinnar er sýningin uppseld.
„Sýningin er einstaklega fjölbreytt og margar nýjungar. Það eru allar tegundir af fyrirtækjum er þjóna íslenskum sjávarútvegi að með bása. Bæði stærstu fyrirtæki á þessu sviði og svo minni fyrirtæki. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn á sýninguna sem er vissulega ánægjulegt. Og þar ber sérstaklega að nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði á sjó og landi.“
Hverju þakkar þú þennan mikla áhuga á sýningunni á næsta ári? „Það er ýmisslegt sem kemur til. Í fyrsta lagi er mikil eftirvænting hjá sýnendum að hitta viðskiptavini bæði nýja og svo gamla og gróna viðskiptavini. Þá er Laugardalshöllin eina sérhannaða sýningarhöllin á Íslandi og einstaklega vel staðsett til dæmis með stór hótel í næsta nágrenni. Menn treysta því að þessar sýningar séu faglegar og forvitnilegar. Þá er áhuginn utan af landi áberandi og sýnir hversu miklu máli sjávarútvegurinn skiptir fyrir landsbyggðina,“segir Ólafur og bætir við.
„Síðast en ekki síst þá er sýningin á afar góðum markaðstíma. Ég er búinn að halda sýningar stórar og smáar í 25 ár og reynslan kennir að það er vænlegast til árangurs að halda sýningar að hausti. Þegar menn eru komnir úr sumarfríum og svo er að hefjast nýtt kvótaár. Slík skiptir afar miklu máli og líka að fyrirtækin hafi góðar tíma eftir sýninguna til að fylgja eftir samtölum við sýnendur og hugsanlega viðskiptavini. Þess vegna er seinnipartur september afar góður sýningartími,“ sagði Ólafur að lokum.
Myndir – Aðsendar
frá Sjávarútvegssýningunni 2019.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.