Sjómannskonur: Ásta Jóna

Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum.

Fjölskylda? Eiginmaður Sveinbjörn Óðinsson, börn eru Alexander, Illugi, Halla Ruth og Jón Ólafur.

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Ég hef verið sjómannsfrú síðan árið 2009.

Á hvaða skipi er maki þinn? Svenni er á Huginn.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Nei við kynntumst ekki þegar Svenni var á sjó því vorum 8 ára þegar við kynnumst fyrst.

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Já Svenni hefur verið nánast allt okkar samband á sjó.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Það hefur bara gengið mjög vel að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf. Pabbi minn var líka sjómaður svo að ég þekki eiginlega ekkert annað en að vera í sjómannsfjölskyldu. Auðvitað er líka stundum leiðinlegt að hafa hann ekki heima eins og þegar okkur er boðið í brúðkaup og svoleiðis en það eru bara kostir og gallar í þessu.

Helstu kostir sjómennskunnar? Helstu kostir sjómennskunnar eru löngu fríin inn á milli túra og þá reynum við að fara í eitthvað frí saman og einnig þegar ég er komin með nóg af Svenna þá er bara fínt að hann fari aðeins á sjó.

Helstu gallar sjómennskunnar? Gallar sjómennskunnar væru kannski helst hversu miklu sjómenn missa af í landi eins og t.d afmælum og íþróttaleikjum barna sinna.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Það hefur verið hefð fyrir því að fara á tónleika á föstudeginum, hitta svo skipverjana hans Svenna í fordrykk á laugardeginum og fara svo saman í mat og á ball í höllinni. Við höfum reyndar ekki verið á sjómannadeginum í Eyjum síðastliðin 2 ár en erum ákveðin að vera í ár.

Eitthvað að lokum? Að lokum langar mig að segja til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur þeirra.

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Ásta Jóna
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan
Myndir: Karlakórinn söng sumarið inn í Eldheimum – Uppfært: Myndband
„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Sjómannskonur: Birna Karen
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.