Sjómannskonur: Birna Karen
Birna Karen og Leó Snær ásamt börnum þeirra þrem Baltasari Hrafi, Hrafntinnu Rós og Gabríel Þór.
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Fjölskylda? Maðurinn minn er Leó Snær Sveinsson. Við eigum 3 börn, þau Baltasar Hrafn, Hrafntinnu Rós og Gabríel Hrafn.

Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Síðan 2018.

Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er stýrimaður á Vestmannaey.

Kynnist þið þegar maki er á sjó? Nei, við kynntumst þegar hann fór í viðskiptafræði í HR.

Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Nei, en hann hefur verið on og off síðan hann var 13 ára, svo skellti hann sér í nám og við kynntumst þar og svo fór hann alfarið á sjó 2018.

Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Með góðu skipulagi getur allt gengið vel.

Helstu kostir sjómennskunnar? Þegar hann fer aftur á sjó og ég get þá horft á mína sjónvarpsþætti í friði án alls tuðs. Nei smá djók, en kostir eru góð frí inn á milli og tekjurnar fínar.

Helstu gallar sjómennskunnar? Mér finnst óvissan alltaf frekar óþægileg, hvenær á að fara út, hvar á að landa og hvenær hann kemst heim og þá sérstaklega þegar landað er annars staðar en heima. Eins og á veturnar eru þeir mikið að landa fyrir austan og þegar þeir eru að koma í frí þurfa þeir að keyra að austan og heim og þá hefur maður stundum smá áhyggjur, því færðin er ekkert alltaf frábær.

Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Við förum alltaf á bryggjuna á laugardeginum og svo seinnipartinn hittist áhöfnin heima hjá skipstjóranum og förum svo þaðan með rútu upp í Höll í matinn og á ballið. Á sunnudeginum fer Leó alltaf í messu og svo er farið í sjómannadagskaffið og á Stakkó, svo endum við daginn að borða með tengdó. En í ár ætlum við að breyta til þar sem Leó er, að ég held, mesta Bubba fan sem fyrir finnst þá ætlum við að vera uppi á landi og fara á afmælistónleikana hjá Bubba.

Nýjustu fréttir

„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Sjómannskonur: Birna Karen
Aukið frelsi og sanngjarnt verð
Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.