Sjómenn ánægðir í starfi
Um 90 prósent sjómanna eru ánægðir í starfi sínu en aðeins um 4 prósent eru óánægðir. �?etta kemur fram í nýbirtri könnun sem Gallup gerði fyrir Samgöngustofu.
Tilgangur könnunarinnar var að kanna líðan og öryggi sjómanna og að nýta niðurstöðurnar til úrbóta og hvata til aðgerða. Meðal annars var spurt um öryggi um borð, slys og áhættumat, ánægju í starfi, óhöpp og orsakir þeirra. Einnig vorum sjómenn spurðir um eigin heilsu og líðan um borð.
�?á kom einnig fram að tæplega 80 prósent sjómanna voru ánægðir með að hafa sjómennsku að atvinnu.
Niðurstöðurnar sýna að miklar framfarir hafa orðið frá fyrri könnunum í öryggismálum sjómanna og hefur slysum og óhöppum fækkað jafnt og þétt. �?ví má þakka bættum skipakosti, aukinni menntun sjómanna og viðhorfsbreytingu til öryggismála um borð í skipunum. Einnig hefur aðbúnaður um borð sífellt orðið betri.
Helstu niðurstöður
Niðurstöðurnar benda einnig til þess að sjómenn taki öryggismál alvarlega. �?annig vekur það athygli í þessari könnun að undirmenn á skipum telja að öryggismálum sé ábótavant og það skorti fræðslu og kynningu fyrir nýliða. Skipstjórar telja öryggismálin séu í góðu horfi og að það sé ekki skortur á öryggisráðstöfunum.
Í frétt á vef Samgöngustofu segir að sjómennirnir sem tóku þátt starfa á skuttogurum, fiskiskipum undir 15 brúttótonnum, fiskiskipum yfir 15 brúttótonn, vinnuskipum og farþegaskipum. Flestir sjómennirnir hafa starfað 11 �?? 20 ár á sjó.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.