Skammtímasamningur um rekstur heilsuræktar ræddur í bæjarstjórn
World Class opnaði á miðvikudaginn sl. í íþróttahúsinu.

Tímabundið samkomulag um rekstur heilsuræktar var til umræðu á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. Forsaga málsins er sú að útboð um uppbyggingu og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja var kært og er í ferli hjá kærunefnd útboðsmála og óljóst hvenær niðurstaða kemst í það mál. Vegna þeirra aðstæðna samþykkti bæjarráð tímabundinn fjögurra mánaða samning við Laugar um reksturinn.

Á fundi bæjarstjórnar bókuðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að þau telji að undirbúningur vegna útboðs á rekstri heilsuræktarinnar hefði þurft að hefjast talsvert fyrr í ljósi framvindunnar en dæmi eru um að útboð og rekstur þessa tækjasalar hafi áður valdið kærum og því ætti sú staða sem er uppi í dag ekki að koma á óvart. Best hefði farið á því ef hlutlaus aðili hefði séð um rekstur tækjasalar þar til kærumál væru útkljáð, en engu að síður er gott að skammtímasamningur hafi náðst við Laugar í þessari erfiðu stöðu en áhugasamir geta þá nýtt sér þá þjónustu og ekki þarf að koma til lengra þjónusturof. Samningamál vegna tækjasalar íþróttamiðstöðvar hafa í gegnum tíðina farið í gegnum fjölskyldu- og tómstundaráð, síðast í janúar 2021 en ekki bæjarráð líkt og nú er gert.

Í bókun bæjarfulltrúa E og H lista segir að uppbygging mannvirkja við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjabæjar undir heilsurækt sé fjárfesting í fastafjármunum og því eðlilegur ferill málsins að bæjarráð annist meðferð þess. Í framhaldinu, eftir að verður búið að vinna samning þá mun það fara inn til fagráðsins til kynningar. Meirihluti E og H lista fagnar því að ekki hafi orðið mikið rof á þjónustu við líkamsræktarsalinn í Vestmannaeyjum og nú séu komin ný tæki fyrir bæjarbúa til að nota.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.