Skorið á sjö slöngubáta

Seinni partinn í dag var Lögreglan kölluð að smábátabryggjunni í Eyjum vegna sökkvandi slöngubáta. Þá var Björgunarfélagið einnig kallað til aðstoðar.

Þar hefur verið á ferðinni aðili eða aðilar vopnaðir eggvopni og gengið um flotbryggjuna og skorið á slöngur báta sem og bönd eins báts.

Fór svo að kalla þurfti til aðstoð kranabíls til að halda einum bátanna á floti. Greinilegt er að um töluvert tjón er að ræða.

Eyjafréttir höfðu samband við lögreglu sem ekki vildi gefa neitt upp að svo stöddu, ekki er vitað hver var að verki en vonast er eftir að verknaðurinn hafi náðst á eftirlitsmyndavélar.

Óskar Pétur Friðriksson tók myndirnar með fréttinni.

Nýjustu fréttir

Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.