Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
Niðurstaða íbúakosningar sýnir að meirihluti þátttakenda vill að skoðaðir verði möguleikar á uppbyggingu á M2-svæðinu sem fór undir hraun árið 1973. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Íbúar í Vestmannaeyjum hafa sagt skýrt sitt álit í íbúakosningu um þróunarsvæðið M2, sem fór undir hraun í Heimaeyjargosinu árið 1973. Niðurstaðan sýnir að meirihluti þeirra sem tóku þátt vill að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á svæðinu.

Í íbúakosningunni var spurt: „Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem fór undir hraun í gosinu 1973?“

Samkvæmt yfirlýsingu frá yfirkjörstjórn Vestmannaeyja voru 3.538 á kjörskrá og greiddu alls 1.526 atkvæði. Kjörsókn nam því 43,13 prósentum.

Niðurstöðurnar féllu þannig:

Niðurstöður kosningarinnar

  • Já: 1.053 atkvæði (69,00%)
  • Nei: 459 atkvæði (30,08%)
  • Auðir seðlar: 14 (0,92%)
  • Ógildir seðlar: 0

Tæplega sjö af hverjum tíu sem tóku þátt í kosningunni vilja því að farið verði í frekari skoðun á mögulegri uppbyggingu á M2-svæðinu.

Yfirkjörstjórn staðfesti niðurstöðurnar í dag, 18. maí.

default

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.