Smá tilkynning og þakkir frá Skólalúðrasveitinni 

Núna um helgina 19.-21.maí stóð til að haldið yrði hér í eyjum landsmót AB skólahljómsveita (það eru yngri nemendur skólahljómsveita). Á morgun áttu að koma hér 700 börn ásamt rúmlega 100 kennurum og fararstjórum. Öll skipulagning hefur verið í samvinnu stjórnar Samtaka íslenskra skólalúðrasveita SÍSL og Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja og hefur gengið vel.

Gert var ráð fyrir að skipta hópnum í sjö hundrað manna lúðrasveitir. Var búið að fá inni í flestum sölum á eyjunni til að dæmið gæti gengið upp.

Einsi Kaldi var í startholunum með mat fyrir rúmlega 800 manns, Hallarbændur búnir að gera ráðstafanir í Höllinni svo hópurinn gæti matast þar og átt góða stund á laugardagskvöld. Listamenn höfðu verið fengnir til að skemmta börnunum bæði á meðan æfingum stóð og á kvöldskemmtun.

Gert var ráð fyrir gistingu í báðum grunnskólum, Safnaðarheimili og Tónlistarskólanum. Búið að skipuleggja afþreyingu í Sæheimum, Eldheimum og sundlauginni. Rútur frá Viking og lánssendibílar klárir og Herjólfur fullbókaður.

Í skipulagningunni kom vel í ljós hversu vel við búum að því hér í eyjum að eiga reynsluna af skipulagningu viðburða sem þessa. Var gott að geta leitað til aðila sem séð hafa um skipulagningu íþróttamóta og var eftir því tekið hvernig röðun í gistingu og annað gekk vel upp.

Hvar sem komið var að í skipulagningu mótsins voru allir aðilar tilbúnir að aðstoða og leggja til sína reynslu og þekkingu.

Því miður búum við í þeim veruleika að vera háð duttlungum veðurguðanna og við það verður ekki ráðið. Því var mót helgarinnar slegið af í gær. Við elskum að búa hér, en vitum hvað því fylgir og það þýðir lítið að fárast yfir því, þegar veður og sjólag verður til þess að jafnvel bestu plön ganga ekki eftir.

Vissulega eru vonbrigðin mikil, svo ekki sé talað um hjá þeim ungu sálum sem sáu fram á bestu helgi lífsins. En eftir stendur þó ánægjan eftir góða samvinnu og hjálpsemi hvert sem litið var.

Þetta þýðir þó ekki að árar hafi verið lagðar í bát. Til stendur að finna mótinu nýja dagsetningu í lok sumars, eða snemma hausts. Skipulagið er klárt og þá er bara að setja í gang og vona að veður og vindar verði okkur hliðhollari.

Skólalúðrasveit Vestmannaeyja og stjórn SÍSL vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem aðstoðað hafa við skipulagningu mótsins á einn eða annan hátt.

F.h. Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja

Jarl Sigurgeirsson

Nýjustu fréttir

Foreldrar Elliða stolt á leið til Danmerkur
Dýpi ekki nægjanlegt í Landeyjahöfn — Herjólfur fer til Þorlákshafnar
Sigurmark ÍBV kom í blálokin gegn Fram
Andlát: Þórunn Pálsdóttir
Mílan Jezdimirovic skrifar undir samning við ÍBV
Aukum loðnuveiðar
Eyjagöng gera samninga um jarðfræðirannsóknir
Kristmundur Axel meðal listamanna á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.