Sótt hefur verið um 65% af lóðunum sem er úthlutað fyrir hvítu tjöldin í Herjólfsdal, eða um 800 metrar. Dóra Björk Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ÍBV sagði í samtali við Eyjafréttir að úthlutunin hafi gengið vel fyrir utan byrjunarörðuleika sem urðu í byrjun, „það var vegna samskiptaörðuleika við Borgun um greiðslufyrirkomulagið,“ sagði Dóra Björk.
Á morgun er síðasti dagurinn til að taka frá tjaldstæði á skipulögðum götum í Herjólfsdal. Einnig þarf að staðfesta umsóknina um lóðina á tímabilinu 26. – 28. júlí og er það gert á heimasíðu Þjóðhátíðar, dalurinn.is.
Dóra Björk vildi jafnframt minna á upplýsingarnar og dagsetningarnar sem eru gefnar upp hér að neðan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst