Kona sem ákærð var fyrir að sparka í pung manns í Vestmannaeyjum árið 2005var sýknuð í Héraðsdómi Suðurlands í gær. Dómnum þótti ekki sannað að konan hefði sparkað viljandi í klof mannsins, heldur hefði sparkið verið ósjálfráð viðbrögð við hálstaki sem maðurinn hafði á henni. Sparkið átti sér stað á veitingastaðnum Prófastinum í Vestmannaeyjum í júlí árið 2005. Í ákæru segir að konan hafi „sparkað í klof mannsins af miklu afli með þeim afleiðingum að hann missti andann og hneig niður, pissaði blóðlituðu þvagi og hlaut mar á pung, eymsli í hægri eistnalyppu og þvagrás.”
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.