Spennandi verkefni hjá Grími kokki
Fiskur er hollur og góður matur en gæti hann verið hollari? Að því hefur Grímur kokkur ásamt Matís unnið á undanförnum árum.
�??�?rátt fyrir að heilsusamleg áhrif þess að neyta fjölómettra fitusýra séu margsönnuð er þeirra ekki alltaf neytt í nægu magni vegna þess að neysla á feitum fiski er frekar lítil á Íslandi. Matís og fyrirtækið Grímur kokkur (www.grimurkokkur.is) hafa á undanförnum árum unnið saman að verkefnum um auðgun sjávarrétta úr mögrum fiski með ómega olíum.
Í norrænu verkefni, sem styrkt var af Nordic Innovation, þróaði Grímur kokkur tilbúna sjávarrétti sem auðgaðir voru ómega olíum til að auka magn ómega 3 fitusýra og um leið hollustugildi réttanna. Olían kom frá fyrirtækinu BioActive Foods í Noregi en hún er unnin að hluta til úr íslensku lýsi. Í samstarfi við Alfons Ramel á Rannsóknastofu i næringarfræði, Háskóla Íslands og Landspítala var gerð íhlutandi rannsókn til að kanna lífaðgengi (bioavailability) n-3 fitusýra sem bætt var í tilbúna rétt og bera saman við ómegaduft sem neytt var beint. Í rannsókninni tóku þátt 77 manns yfir 50 ára að aldri en auglýst var eftir þátttakendum. Einn hluti þátttakenda neytti hefðbundinna fiskrétta frá Grími kokki, annar hópurinn neytti fiskrétta sem auðgaðir voru með ómega olíu og þriðji hópurinn neyttir ómegadufts. Rannsóknin stóð í fjórar vikur og voru tekin sýni af blóði fyrir og eftir. �?eir þátttakendur sem fengu ómega olíu eða ómega duft fengu u.þ.b. ráðlagðan dagsskammt af DHA og EPA fitusýrum. Magn EPA í blóði tvöfaldaðist hjá þeim sem neyttu ómega og DHA jókst líka marktækt. Engin breyting mældist í blóði þeirra sem ekki fengu ómega.�?? segir í frétt á heimasíðu Matís.
�?essar rannsóknaniðurstöður hafa nú verið birtar í vísindagrein í tímaritinu European Journal of Clinical Nutrition (2014) undir nafninu: Bioavailability of long-chain n-3 fatty acids from enriched meals and from microencapsulated powder. Höfundar greinarinnar eru Harpa Hrund Hinriksdóttir, Valgerður Lilja Jónsdóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, Emilía Martinsdóttir og Alfons Ramel.
Matís, Grímur kokkur og BioActive Foods munu halda áfram rannsóknum á þessu sviði í EU verkefninu EnRichMar.
Spennandi verkefni hjá þessu ört vaxandi vestmannaeyska fyrirtæki.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.